tjah, það er nú kannski eitthvað gott í'onum
Allt annað skemmtilegt !
04.09.2006 21:25:01 / sonni

xxx

karlh.bloggar.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 00:03:35 / sonni

Siggi Stormur

the champ is here !!...again...

jáá þið segið það.
Ætli það sé ekki best að byrja á línunni sem er einna vinsælust í mínum bloggum:
"Lítið að frétta af mér"

svo kemur: bara vinna og svo einhver óskundi á kvöldin...
Þá er hausinn yfirleitt tómur, og þá fer maður að skálda í eyðurnar !
Talandi um óskunda á kvöldin...Hef verið að búast við að fara á rúntinn núna kvöld eftir kvöld eftir kvöld...en aldrei verður neitt af því..hví syldi það vera ?? hmm..skítalykt af þessu máli ;)
Enda nú samt yfirleitt á rúntinum...djö. Það verður nú að eyða þessu bensíni ! það er svo ódýrt. Ég hef ekki ennþá fengið betri útskýringu á hækkandi bensínverði á Íslandi heldur en hækkandi heimsmarkaðsverð..og heimsmarkaðsverðið hækkar því einhverjir jakkafata-doddar eru hræddir við einhverja Araba sem spranga um með skammbyssur og viskas-stykki á hausnum !..kræst..

Frakkland-Ítalía í úrslitaleik á HM 2006, stend með Ítölum í þessum leik..en þú ?

Niðurrakk dagsins í dag, því alltaf sér maður þörf fyrir að skíta yfir eitthvað, munu vera íslenskir söngvarar, desperat í að "meika'ða". Ætla að byrja á honum Magna í hinni hörmulegu sveit, Á móti sól.
Álit mitt á manninum hefur verið lítið frá því ég heyrði í honum fyrst. Veit svosem ekki af hverju, sennilega hin ömurlega hljómsveit sem hann gaular fyrir. Magni magnaði skráði sig, ásamt 2 öðrum í Rock Star supernova þáttinn, náði inn í 16 manna úrslitin og keyrði þar með "væntingavísitölu" íslendinga upp í eldrautt. Að sjálfsögðu tók kallinn sig til og skeit á sig, eins og sönnum íslendingi sæmir (samanber, flestallar júróvisjon keppnirnar) og yrði það víst skrýtið ef hann yrði ekki sendur heim strax aftur með skottið á milli lappanna og drulluna upp á bak.
Heimsfræga rokkstjarnan Magni magnaði...aldrei.
Viðurkenni að ég sá ekki þáttinn, enda vissi ég að þetta myndi gerast. En allir þeir sem hafa sagt mér frá þessu hafa sagt eitthvað í þessum dúr.
Hreimur pussycat fór líka í þetta og var rekinn með það sama fyrir að vera of kellingalegur..gott á hann.
Heiða Idol stjarna fór víst líka og var send heim...enda hefur hún lítið annað getað gert en að vera einhverskonar "hálfleiksatriði" í hinum Idol-seríonum..

EN !..um leið og einhverjir Íslendingar, sem eru vondir á hljóðfæri (að eigin sögn !) demba sér í reisu til útlandsins, spila lög sem eru það leiðinlega að þau gætu drepið lítinn fíl, eru asnalegir...ekki svona kellingalegir eins og Hreimur heldur bara asnalegir, þá meika þeir það ??? WTF ??
Til að hámarka þetta þá syngur söngvari sveitarinnar líkt og unglingsstrákur í mútum með hlaupahjól í afturendanum og spilar á gítar með fiðluboga ?? Jú kæru lesendur..ég er að tala um Sigurrós.
Jú og svo er ein þokkalega geðsjúk kelling frá Íslandi að skjóta sér inná stjörnuhimininn stöku sinnum, sú kelling heitir víst Björk og henni þykir gaman að tala asnalega ensku.

Jæja nóg komið af niðurrakki. Býst einnig við því að vera rakkaður niður fyrir eitthvað af þessu niðurrakki hérna.

Þar sem mínum hefbundna nethring er að ljúka ætla ég að ljúka þessu bloggi með smá samantekt frá öðrum síðum sem ég rakst á:

*Hildur Eva ætlar að prófa á krossara..spillingin er mikil á hálendinu ! Hildur ! þú ert ótryggð !
*Hilma var að þrífa ísvélina...
*Mikki var nýlega að hlusta á lag af nýju Muse plötunni sem er by the way snilld.
*Heiðar talar um Geir Ólafs..
*Gulla er laumuskotin í Bjarna Héðinshöfða
*Útlendingarnir Erna og Halla að koma heim
*Ásgeir fór í útilegu
*Einhver fótboltagaur meiddist við að þrífa fiskabúrið sitt...hehehe..hálfviti..
*Það var einhver fyrir sunnan að fá sér nýja Hondu...
*Skildi ekki alveg bloggið hans Sigdórs
*Ekki heldur hjá Höllu Björg
*Hanna Jóna vill heimsfrið
*Harpa að auglýsa einhvern leik sem er löngu liðinn...hún klúðraði dauðafæri..svekk ! ;)

Verð að enda þetta á frábærum þrumufleyg hjá Sigga Stormi í hádegis-veðurfréttum á NFS um daginn !
"Svo er líka rómantískt að sitja inn í fellihýsi og spila matador!"


Látum þetta gott heita, sjáumst.
The champ was here !!

» 9 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 00:06:06 / sonni

steini straumur...

the champ is here !

Tveir fílar sátu uppá skýi og voru að prjóna gaffla.
Allt í einu kom hundur fljúgandi framhjá þeim
þá leit annar fíllinn á hinn og sagði:
já allt er nú til...




Einu sinni voru tvær flaggstangir að fljúga.
Þá sagði önnur flaggstöngin við hina:
heyrðu gamla, ég held að ég sé komin með svo sítt hár að ég bara geti ekki flogið lengur !!
þá segir hin:
það er allt í lagi, amma mín á ísbúð.



Hefurðu heyrt um rolluna sem datt oní skurð en það var allt í lagi því hún var með kit-kat í vasanum ?


Dúndrið þessum snilldar aulabröndurum í komment ef þið kunnið einhverja góða !

Annars er allt það sama að frétta, Fór aðeins og tjékkaði á Benidorm um daginn, þa'va'Hínt !
Getið lesið einhverjar ferðasögur og séð myndir á
www.blog.central.is/buffalo
www.blog.central.is/klikkadar

Hef engu við þessar ferðasögur að bæta nema að mig minnir að ég hafi drullað 13/14 sinnum í ferðinni sem er undir meðallagi.

þetter gdr...


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 23:46:28 / sonni

wazzap ?

WAZZAAAAAPP !!!....scream
ooohhh excuse !! excuse......eurotrip

g. kvöld
geiri's place núna...Muse, bjór, eourotrip, þráðlaust lyklaborð..næs !!
sem þýðir að einhver þarf að skutla bílnum mínum heim á eftir ! einhverjir sjálfboðaliðar ?..ekki þú Mummi..!

Arsenal leikur í dag. Ég var svosem ekki vongóður eftir slakan árangur í síðustu 2 leikjum. Minn maður Hleb kom Arsenal yfir, Porsmouth jöfnuðu eftir góða sókn. Wenger setti bara Begga gamla inná á DB10 deginum og hvað gerir minn maður !? jú, leggur upp jöfnunarmarkið og skorar það þriðja einkar fallega ! ég væri nú að ljúga ef ég segðist ekki hafa verið ánægður !!
Annars spilar sá gamli sinn síðasta leik í Júlí í Emirates Stadium..á eftir að sakna gamla mannsins !
Vantaði bara að minn maður Fabregas hefði komið inná og gert gott mót..þá hefðu allir mínir 3 menn í þessu liði gert vel ! og þeir eiga allir 1 sameiginlegt...

Nóg af fótbolta !
Páskar víst núna..éta páskaegg á morgun en ekki í dag..þá yrðu allir brjálaðir !
Páskafríið hefur verið gefandi..
Fimmtudagur: ekki neitt nema að raða skólablaðinu (Jón) saman..gefandi og skemmtilegt starf ! Restin að deginum fór svo í...eitthvað
Föstudagur: Raða Jóni saman..bera Jón út..bíó á Ak með Geira, Sigga og Elísabet..gefandi ferð ! ágætis mynd svosem...þó svo að besta atriðið hafi víst verið í hléi..sem ég sá ekki ! nánari útsýringar hjá Geira..
Siggi átti komment dagsins:
"Þú ert svo harðbrjósta að það er hægt að negla varadekk með þessu !!"
einstaklega gefandi og skemmtilegt komment ! ég hló allavegana mest alla Svalbarðsströndina af þessu..

Jæja...eitthvað fyrir ykkur að lesa !
sjáumst !


» 21 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 00:09:57 / sonni

vam bam búmm

kræst..þetta vam bam búmm hjá sylvíu nótt er ekki að gera sig ! hehehe...
pirrandi nokk að skrifa fínasta blogg en ýta óvart á -hreinsa- en ekki -staðfesta-..lenti í því á föstudaginn, pirraðist mikið og hætti við að blogga. þar hafið þið það !

En já, fyrst að Mummi sjálfur var farinn að ýta á mig að blogga, þá bara varð ég. Eitthvað verður nú Mummi kallinn að brasa..ekki fer hann á rúntinn !! ;)..sorry Mummi..ég varð !

Föstudagur: Venjulegur Föstudagur. Vinna til rétt rúmlega sautjánhundruð..fannst þetta skrýtinn vinnudagur. Það einhvernveginn var allt að klikka, það sem ég setti upp sneri vitlaust þannig að ég þurfti að rífa allt niður aftur og setja upp hinsegin..stundum meira segja var það vitlaust líka ! plast drasl mölnaði í höndunum á mér, ídráttarfjöðrin alltaf að festast í rörunum og meira gaman. Samt varð ég ekkert pirraður ! Vissi alltaf einhvernveginn að þetta myndi reddast..;) Svona er maður þolinmóður ;)

En já..þessi vinna...til hvers er maður að vinna ? jú til að eignast peninga ? eða er maður bara að bíða eftir næsta helgarfríi og svo næsta helgarfríi þangað til kemur páskafrí, svo sumarfrí, svo jólafrí og svo endurtekur það sig aftur og aftur þangað til maður fer á eftirlaun ? þetta er pæling...á maður að vinna eingöngu fyrir sjálfan sig ? þ.e mæta á morgnana og fara bara kl. fimm eða sex eða what ever, skítsama um hvað maður var að gera svo lengi sem maður klárar sitt og fær sín laun. Eða á maður að "lifa í kringum vinnuna" þ.e pæla mikið í þessu sem maður er að gera og líka þegar maður kemur heim, þ.e pæla hvernig maður ætlar að gera þetta og hitt þegar maður er ekki í vinnunni ? segðu þína skoðun á þessu !

Ég sjálfur vinn í rafiðnaði, ófaglærður en stefni á að læra. Þannig að öll þessi vinna, allt sem mér er treyst fyrir að gera mun koma sér vel fyrir mig. Þannig að það hlýtur að vera einhver annar tilgangur, allavegana í mínu tilviki, með vinnunni sem ég er að gera en ekki bara að bíða eftir launaseðlinum.
Að vinna við iðnað og vera ófaglærður getur að sjálfsögðu verið erfitt. Sérstaklega þegar maður er sendur jafnvel einn eitthvað, með leiðbendingar frá yfirmanninum og maður verður að redda þessu.
En að sama skapi er það mikil áskorun og alltaf jafn gaman þegar maður sér það sem maður var að "smíða" virka. og þegar ekki gengur strax, að geta þá reddað því sjálfur. Þó að maður þurfi að fá stundum einhverja hjálp við það frá reyndari mönnum. Enda svosem ekki hægt að ætlast til þess að sjálfum sér að geta vaðið í allt strax, er bara búinn að vinna í þessu í um 3 mánuði núna ;)

En áfram með helgina mína !

Föstudagur framhald: Eftir vinnu gerði ég nú eiginlega bara ekki neitt ! hékk bara heima, horfði á Idol, Muse tónleika og hékk á netinu og allt á sama tíma ! semsagt, setti Muse í DVD spilarann, skipti einstaka sinnum á Idol, setti hljóðið á Idolið á meðan Ína var að syngja og var með annað augað á tölvunni og hitt á kassanum (sjónvarpinu)

Laugardagur: Vaknað frekar snemma miðað við minn standard, sest upp í santa fe inn með mömmu og pabba og brunað á Egilstaði..svaf reyndar mest allan tímann. Hitti Hafstein á Egilstöðum og stökk yfir í bílinn hjá honum, brunað upp á Fjarðarheiði þar sem ég horfði á snowcross, ekkert eðlilega kalt ! Þetta var alþjóða mótið þannig að nokkrir úllar mættu, nokk góðir ! Eyþór Hemmert rúllaði samt hinum íslendingunum upp og var sá sem hékk svona einna mest í úllunum og strákurinn íslandsmeistari í pro flokk í snowcross eftir daginn ! glæsilegur árangur það hjá pollanum.
Eftir mótið brunuðum við Haffi á Reyðarfjörð, þar sýndi hann mér allt sem var vert að sjá, álversframkvæmdirnar, kampinn, keyrðum framhjá kósí, einhverjum veitingastað sem byrjar á T (átum reyndar pítsu þar seinna um daginn), stríðsmynjasafninu og...já. Svo keyrðum við bara útum allt þarna, sáum Sverri bæjar-róna, versta trailer-bakkara á Íslandi (samkvæmt Haffa) og fleiri !
Reyðarfjörður er ekki stór staður en samt 3 sjoppur !...engin með lúgu, Húsgagnaverslun og allavegna 2 rafverktökum ! merkilegt nokk..
Brunuðum svo upp á Egilstaði seinna um kvöldið, nokkrum rúntum stútað og svo bara haldið upp á hótelherbergi.

Sunnudagur: Vaknað frekar snemma miðað við minn standard á sunnudegi og stokkið upp í santa fe-inn með mömmu, pabba og ömmu Jóhanns Ágúst, henni Höllu matreiðslukennara..hún fékk far með okkur heim. Ég svaf reyndar mest allan tíman...
Fór svo heim til Geira í snögga heimsókn..sem varð síðan vel fram á kvöld.

Svo er brand new vinnuvika á morgun..mánaðarmót..sem þýðir að maður fær einhverja peninga inn á reikninginn sinn, kærkomið.
Annars verð ég að koma því að hvað er hrikalega leiðinlegt að flysja kartöflur ! Hef verið að velta þessu fyrir mér lengi. Þegar maður stingur gaflinum í þessi aldrei-hringlaga kvikindi og þær detta í sundur !! gífurlega óþolandi !!

jæja, þetta er svo langt að ég er búinn að blogga fyrir alllan mánuðinn ! ;) það er einmitt kominn 3 apríl núna..passar fínt !

sjáumst !

» 30 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 19:21:48 / sonni

það hefur fallið niður hjá mér bónusinn

svosem ekkert að gerast, sit hérna upp í sófa, einn heima í augnablikinu. MUSE Hullabaloo í í das DVD playah og volume takkinn revaður í botn...og er að bíða eftir að Nóri komi með pítsuna mína.
Stefnt á hitting hjá Nóra í kvöld og arka svo okkar leið niðrá Bauk eða eitthvað þannig.

Annars fór ég á söngleikinn Frelsi (að mig minnir) í vikunni. 10 bekkur setti það verk upp og gerði það bara alveg glimrandi vel. Verkið fjallaði um svona vinadæmi á unglingsárum. Svona the nerds og svo kúlistarnir. Svo flutti einhver ný stelpa í bæinn og byrjaði í bekknum sem persónurnar í verkinu voru í. Þarf varla að spurja að því að stelpan var stimplaður nörd hið fyrsta. Gekk í asnalegum fötum og fleira stelpudrama. Svo kemur nú bara djöfullinn sjálfur og reddar henni svo hún gengur í lið með kúlistunum en snýr baki við the nerds. Svo ætlar djöfullinn að hirða allar sálir þessara aumu unglinga og þar á meðal stelpunni sem hann reddaði (gaf henni síma og alles !) og ætlaði að hafa sérstaklega gaman að þurrka sálartetrið úr henni þar sem hún var víst afkomandi Sæmunds Fróða (hét hann það ekki annars ?) en eins og frægt er, þá lék víst Sæmundur Fróði all verulega á kölska um árið og skyldi hann eftir með tárin flæðandi og drulluna í brókinni. Hehe býsna sniðugt. Eeeen hvað gera the nerds ?! jú, fatta málið og redda hlutunum ! Og allir glaðir og graðir !
Elvar Árni Kúta fór einmitt á kostum sem aðal nördið ! Þetta var þvílík snilld hjá drengnum, hann datt aldrei úr karakter og var ekkert feiminn við að vera svoldið "asnalegur" á sviðinu, en stundum þegar maður sér verk með óreyndum leikurum eru sumir feimnir við að gera sig að fífli á sviðinu en verða bara asnalegri fyrir vikið. Aðrir leikarar voru flestir góðir, misgóðir þó. En enginn áberandi lélegur. Þannig að þetta var bara alveg snilldarverk hjá 10 bekkingum í ár.
Skyldist líka að aðsóknin hefði verið mjög góð. Eitthvað annað en þegar Píramus & Þyspa setti upp Stræti í fyrra. Það komu virkilega virkilega fáir. Sem var ömurlegt því að þeir sem komu sögðu að þetta hefði verið vel gert hjá okkur. Vinnan sem við lögðum í þetta var líka gífurleg, bjuggum til leikhús úr einhverri skemmu. En það þýðir ekki að gráta Björn bónda eftir að hann er dauður...svekkjandi að heita Björn og vera Bóndi ? Öllum alveg sama þegar maður drepst og svona..."tjahh það þýðir nú ekkert að gráta þennan gaur..alavegana segir tækið segir til um það" myndu allir ábyggilega segja...þannig að manni yrði bara hent oní einhverja holu og látinn rotna..gaman gaman

Skrapp upp í Mývatnssveit með Nóra og kíktum á Snocrossið. Hemmert var bara í essinu sínu í dag og vann öll hítin. Tók öll störtin og leiddi frá upphafi til enda. Vel gert hjá stráknum ! Aksturinn hjá honum í dag var svo til óaðfinnanlegur, en svo þegar hann var búinn að skila sér í mark í úrslitahítinu, þá fékk hann köflótta flaggið á bakið og ók einn "monthring" með það, eins og alltaf er gert í þessum mótum. En það var ekki að spyrja að stráknum, hann kom inn í "vúbsakaflann" í brautinni (kafli sem er mjög ójafn og svona reynir á jafnvægi ökumanna og taktinn í þeim sem þarf til að komast hratt og örugglega í gegn), hann hafði verið mjög öruggur í þessum tiltekna kafla allan daginn en í monthringnum urlaðist hann svona líka á hausinn og kútvelti sleðanum og mölvaði flaggið sem hann var með á bakinu !! gífurlega fyndið ! sérstaklega að sjá hann standa við sleðann, sem var á hvolfi, og fagna eins og mongó...

Jæja best að fara að hlýða á Matthew Bellamy og félaga aðeins meira.
Nóri ! Art akkart að farað koma með pítsuna mína ?!?! Aldrei hægt að treysta á þig..? ;)

» 20 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 18:06:04 / sonni

sjálfstætt fólk

Takið sunnudagskvöldið frá, í guðanna bænum !
Annars vill ég byrja á því að mótmæla auglýsingu eins mesta ómennis og viðbjóðs sem Ísland hefur alið af sér, sem maður þarf að horfa á í hvert skipti sem maður opnar blog.central.is síðu. Glöggir lesendur eru sennilega búinn að átta sig á því að hér er ég að sjálfsögðu að tala um Egil Gilzenegger. Maður fyllist horbjóði að skrifa þetta nafn, ef "nafn" má kalla.."Gillzenegger" guð minn góður, hvað heldur þetta óghaðisbaddn að þetta sé ?? "Biblía fallega fólksins" ?? þetta er einum of sorglegt til að vera fyndið...Þó svo ég þykist vita að Elli hambó sé yfir sig hrifinn af þessu og búinn að panta sér þessa bók fyrir löngu síðan. Mér sýnist nú á öllu að þetta loft-steratröll sé alveg nautheimskt þannig að þessi bók er sennilega bara ein stór stafsetningavilla, ekki geta nördar eins og Eli sætt sig við það ?

Eitthvað í fréttum ?
Jarðskjálfti fyrir sunnan, enginn dó, engar skemmdir á mannvirkjum, smá kláði í illjarnar...ómerkilegt..;)
Haffi kominn á nýjan bíl, Skoda Octavia Turbo...já eða Töörbóhh eins og ég vill kalla það.
Sigdór fékk sér um helgina...ég líka.
Arsenal vann !!! og það í ensku !! var búinn að gleyma hvernig það var...
Horfði á Ace Ventura (fyrri myndina) um daginn...með betri myndum sem hafa verið framleiddar, ásamt Top Gun að sjálfsögðu.
Sleðamót um helgina, fór með Sigdóri á ofurrollunni hans, hún lék sér að þessu. Eyþór vann úrslitahítið, þrátt fyrir veikindi og bilaðan sleða...þetta gatur strákurinn.
Já svo ég segi nú nánar frá þessu djammi, ég og sigdór byrjuðum heima hjá Dóru..Það var álíka mikið af fólki í þessu partíi eins og hvað voru margar kellingar niðrí kjallara hjá Bóasi ! drengurinn var að heilla þær upp úr skónnum með gítarnum og var staðinn að verki á meðan !
Samt voru þó nokkrir í partíinu !
En svo lá leiðin niðrá Bauk, eftir að ég og Sigdór höfðum rifjað upp gamalkunna takta frá fótboltanum með tóma bjórdós á túngötunni...Við vorum á bauknum til sirka hálf 4..þar voru sumir ógeðslegri en aðrir getum við sagt.

Er samt hálf tussulegur núna..hálsbólga og nefrennsli og þannig skemmtilegheit...gat nú samt alveg farið í vinnu í morgun án vandræða þannig að ég hef ekki stóráhyggjur af þessu.
Vel á minnst. Fyrirtækið Stilling hefur stórgrætt á búbaróinum mínum, búinn að panta þaðan dempara allan hringinn og kertaþráðasett ! og það eru nokkrir þúsundkallarnir þar...en hann verður vonandi góður þegar allt er komið í !

Þetta er nóg handa ykkur í bili, góðir (h)ÁL(sar)
Karl Hannes kveður !! haha þetta var asnalegt...!

» 16 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 18:29:27 / sonni

já ég skal blogga...

maður er varla búinn að ýta á "staðfesta" takkann með einhverrri svaka ritgerð þá er beðið um nýtt blogg !! eða já svona nááánast strax..
Annars er lítið að frétta, stutt síðan ég kom heim úr vinnunni..held að þetta blessaða verk í Fjörfiski er svo til búið held ég...þó getur vel verið að það sé hellingur eftir, mér er ekkert sagt of mikið frá því..enda vill ég ekkert vita það !
Held að blessaður bíllinn sé kominn í lag...allavegana í bili. Var ekki fyrr búinn að ná í hann úr smuri og demparaskiftum, með tilheyrandi kostnaði, fyrr en ég fer að taka eftir einhverjum vangeflingastælum í honum þegar ég gaf honum inn og hann varð ansi þungur upp á snúning og ég fór alltaf að taka betur og betur eftir þessu. Við gamli skiptum um öll kerti en hann lét eins...þá er það svokallaður kertaþráður sem var farinn...þessi 50 cm snúra kostar 2500 kall ! og ætli ég þurfi ekki að kaupa 3 í viðbót á hin kertin fyrst að ég er búinn að skipta um á einu...annað gengur ekki !
Þá á ég bara eftir að kaupa ný tengi á aðalljósin og nýja dempara að framan, þá ætti hann að verða eins og nýr ! og það er líka eins gott...Annars fer þetta að verða eins og Accordinn hjá M.Dollz ! ;)
Svona fyrst að kagginn er orðinn þokkalega nothæfur aftur þá held ég að maður taki kvikindið og skelli hann bónhúð í kvöld...og bóna hann að innan líka og fá hreingerningakeiminn í hann.
Hugsa að allir viti að árshátíð FSH var á föstudaginn, enda all flestir búnir að blogga ýtarlega um það, þannig að ég nenni því ekki, en það var samt alveg ágætt á þessari samkundu, nennti ekki á ballið sökum leti.
Söngvakeppni FSH var líka á fimmtudaginn, eins með það og og árshátíðina, all flestir bloggara með greinargóð skil frá henni þannig að ég eyði litlum tíma í hana. Elísabet vann, Rafnar Orri í 2. og M.Dollz í 3ja. Glæsileg sviðsframkoma M.Dollz gerði gæfumuninn held ég, með þrælæfðum og flottum dansi með tilheyrandi slammi og djöfulgangi !

éta !

» 12 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 19:21:15 / sonni

ég á tvær lóðir !! en ég fæ aldrei að moka skít...

Kvöldið.

Mánudagur í dag...þetta er svipaður mánudagur og yfirleitt, byrjun á nýrri vinnuviku, semsagt heillangt í næsta helgarfrí. Leiðinlegur vinnudagur, leiðinlegir stjórnmálamenn í sjónvarpinu og afgangar í kvöldmatinn.
Já helgin..Ég og Hafsteinn ákváðum að fara í glímu við þann gula á föstudagskvöldið. Það endaði með því að guli hafði naumann sigur. Þá voru kallarnir mættir á baukinn og þegar ég var farinn að geyspa assskoti mikið þá hafði ég mig heim. Sigur þess gula var naumur vegna þess að ég fann ekkert gífurlega fyrir honum daginn eftir, semsagt á laugardaginn..en þó eitthvað eins og vanalega. Sá dagur fór í rúnt og og rólegheit með M.Dollz á Corollunni hennar Dollz.
Um kvöldið kíkti ég á Ásgeir Þór..enduðum á rúntinum og vorum þar til 4 um nóttina, þó með hléum. Ræddum þar um öll heimsis mál en komum samt ekki fróðari menn heim..??
Sunnudagurinn...já Sunnudagurinn. Æfing kl. 15...svo meiri sunnudagur...já og svo sunnudagskvöld. Þá fór ég víst í tún að spila með Ásgeir, Gullu, Hönnu og M.Dollz..Sem var ágætt.
Vinnan í dag...það var víst Fjörfiskur. Þvílíkt leiðindaverk þarna ! ekkert nema tómt bras og leiðindi virðist vera. Djöfull verður fínt þegar þetta er búið ! En það er víst það sem ætti að hvetja mann áfram í að gera sitt besta til að koma sér í, og klára, leiðinleg verk. Þá styttist alltaf í að þau klárist !
Þetta var heilræði og predikun dagsins...

Endurnýjaði skoðanakönnunina ! Minni á nýja..Kjósið !

Hrynur Accordinn hjá Mikka Þosteins árið 2006 ?
Pottþétt og það fljótlega !
65%
Hann gefur upp öndina síðla árs 2006
12%
Hann fer létt með þetta, 2006 verður bilanalaust ár
0%
Smávægilegir kvillar munu hrjá kvikindið, en hann mun þó enn vera á götunum 2007
15%
Hver er Mikki Þorsteins/Hvað er Accord ?
8%

alls kusu 26 sem er gífurlega léleg þáttaka í annars verðugri könnun sem Gallup ætti í rauninni að taka að sér til nánari eftirgrennslunar.

já meðan ég man, Helga Bjé ! þú ert komin í tenglana...

» 11 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 18:44:24 / sonni

ætlaru peggaður á kæjann ?

G.kvöld
Ligg hérna inn í stofu með makkann, leit á sjónvarpið og sá einhverja tvo kalla að vera að sópa svell. Meðan þeir sópu svellið eins og óðir menn voru þeir að labba á undan einhverskonar hnulla sem rann svona eftir svellinu. Þá sá ég að þetta var stórmanna íþróttin Curlin, já eða körling upp á íslenskuna.
Þegar ég sá svo einhvern annan kall, á hinum endanum á svellinu renna svona þessum hnulla eftir svellinu og hinir 2 byrjuðu að sópa, eins og að Bretadrottning ætlaði að fá sér þar göngutúr, þá hugsaði ég með mér að það væri best að henda inn einu bloggi.
Ein pæling samt...af hverju er gaurinn sem kastar körling-hnullanum líka með sóp ? hann gerir ekki neitt með hann ! til að vera töff ? sprettar hann yfir á hinn endan meðan hinir pússa aðeins yfir svellið og bíður þar spenntur og tilbúinn til sópa alveg eins og trítilóður ef nauðsyn er á ? Kannski til að klóra sér í bakinu...? veistu svarið ?? láttu mig vita !
Svo datt ég niður á samantekt af ólympíu leikunum í gærkvöldi, þar stráféllu svoleiðis tjellurnar þarna ! Allavegana 2 í bruni og aðrar 2 í svona sleðakeppni, liggja á bakinu á svona sleða og fara á blússandi siglingu niður einhverja braut.
Ég ætla nú ekki að koma með neina sleggjudóma um þetta en einn mikill maður sagði mér að þetta myndi ávallt enda svona ef konurnar séu keppandi svona í íþróttum fyrir fullvaxna karlmenn..!
Mig grunar nú að hann hafi einungis sagt þetta í gríni en ég verð eiginlega að vera ósammála þessu, enda ein minnsta karlremba sem uppi er, stelpurnar verða að fá að reyna líka !
Hvað finnst þér ?

æfing !
bleha !

» 19 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 14:46:36 / sonni

hann veit ekki hvar sódóma er !!

Daginn

Hvað segið þið ? allavegana er ég góður, þó að ég viti að ég hef ekki verið of duglegur með þessa síðu upp á síðkastið. Aðal ástæðan fyrir því er, að ég held, sú að sama rútínan virðist ganga hjá mér dag eftir dag, kvöld eftir kvöld. Vakna á morgnana (með herkjum) koma sér í vinnu kl. 8, vinna (yfirleitt) til 5, fara heim, borða, fara kannski eitthvað út, aðallega til að rúnta einn eða hitta aðeins félagana og fara svo að sofa..of seint yfirleitt þannig að maður verður þreyttur morguninn eftir og rútínan endurtekur sig. Svosem ágætt...En svona í tilefni helgarinnar, þá ákvað ég í gærkvöldi að fara bara til Ásgeirs, og svo á baukinn. Og taka svo þátt í misgáfulegum umræðum um Enska knattspyrnu eftir að baukurinn lokaði.



Aðalmálið í dag virðist samt vera múslimarnir, brjálaðir út í einhverja Dani útaf einhverjum skopmyndujm af einhverjum kalli sem þeir trúa að sé til og breyti öllu vondu til hins betra og allt gott enn betra !

Jú, þarna sjáum við hvað þessir menningarheimar eru gjörólíkir. Tökum sem dæmi mig, hinn "meðaltrúaða" kristna mann, þá er ég að tala um að ég hugsa ekki um mína kristnu trú nema þegar ég fer í messu á jólunum (sem ég geri alltaf þó að mig hlakki nú aldrei til að fara, aðal hugsunin að bakvið það er að koma beint heim í rjúpurnar) og jú einhverntíman neyðist maður til að fara á jarðarfarir, þótt ég vildi að maður þyrfti þess aldrei, og annað þessu líkt. Hinn "meðaltrúaði" músllmi biður til Allah, eða hvað hann nú heitir, Múhammeð þess vegna, 5 sinnum á dag ! og þarf að snúa smettinu í átt að Mekka á meðan ! þannig að í hvert skipti sem múslimi flytur, þarf hann að finna áttina að Mekka ! sem bara getur ekki verið jafn auðvelt og fyrir mig að skrifa það. Og svo byrtir Danskt dagblað einhverjar skopmyndir af þessum Múhammed, bróðir Allah eða wha'evva, og allir múslimarnir brjálaðir ! samt voru þó nokkur dagblöð og aðrir fjölmiðlar, í öðrum löndum, búnir að byrta þessar sömu myndir ?!? af hverju þá DANMÖrK ?? maður hlær af því að það séu einhverjir Knolle Tottersenar í Írak að berjast í "stríði gegn hryðjuverkum".

Þannig að fyrir mitt leyti er þetta mál svolítið mikið of langt gengið ! Og annað sem mér finnst skrýtið, þessir múslimar verða brjálaðir við að sjá einhverjar teiknaðar skopmyndir af einvherjum kalli sem þeir trúa að sé til, í einhverju dagblaði lengst vestur í Evrópu og vilja sprengja og skjóta alla þjóðina til heljar, samt taka þeir konurnar sínar og lemja þær, nauðga þeim og niðurlægja þær að öllu öðru leyti og skýla sér svo á bakvið trúna ! Allah sagði þeim að gera þetta og Allah sagði þeim að gera hitt...Meira segja bróðir hans Múhammed sammála ! Og þá er allt dottið í dúnalogn.

Þess má geta að Þetta segi ég fullur öryggiskenndar, stórefa að einhver Arabi með viskas-stykki á hausnum fari að þýða þetta blogg mitt og sendi einhverja Allah gaura með basúkku á húsið mitt.



sjáumst !


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 18:24:59 / sonni

halts klukk

Fjögur störf sem ég hef unnið um æfina :
1. Golfvellinum
2. Ruslinu hjá Ómari
3. Víkurraf
4. Esso

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur :
1. TOP GUN !!
2. Slednecks
3. Enemy at the Gates
4. Black Hawk Down

Fjórir staðir sem ég hef búið á :
1. Lundur í Öxarfirði
2. Stórhóll 5
3. ...
4. ...

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar :
1. The Simpsons
2. Top Gear
3. The King of Queens
4. Malcom in the Middle

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg :
1. www.fotbolti.net
2. www.arsenal.is
3. www.skarpur.is
4. www.live2cruize.com

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum :
1. London
2. Kaupmannahöfn
3. Þýskaland...í svona sirka 2 tíma
4. Mallorca

Fernt matarkyns sem ég held uppá :
1. RJÚPA !!
2. Saltfiskur
3. Lambakjöt
4. Sperlar

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna :
1. bílstjórasætinu á svaga pimpin græju
2. Hnakknum á einhverju góðu hjóli
3. sætinu á einhverjum góðum sleða
4. sirka 1-2 cm framar en ég er núna..

Átta bloggarar sem ég klukka:
1. Mikka
2. Heiðar
3. Nóra
4. Guðrúnu Einars
5. Hönnu "hehe"
6. Unni Erlings
7. Hilmu
8. Sigga Már


Vill hér með lýsa yfir stríði við þá sem þurfa að troða grænmeti Í einhverja sígilda góða rétti...ekki MEÐ heldur Í ! T.d Lasagna...einhverjum grasasnanum datt nú í hug að troða einhverju djöfulsins grænfóðri í annars góðan og sígildan mat sem lasagna er og kalla viðbjóðinn því frumlega nafni "grænmetislasagna"...þessum þöngulhaus hefur sennilega ekki dottið neitt skárra hug. Þarf nú varla að taka það fram að grænmetislasagna er varla bjóðandi heimilislausum rökkum.

Kv.
Karl H.

» 13 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 18:57:38 / sonni

w.t.f !

Sko mér er spurn. Hvers vegna í andskotanum er íslenska þjóðin að eyða gífurlegu magni af peningum, sennilega fleiri milljónir, í það að senda einhverja dúdda til útlanda til að reyna að spila handbolta, vitandi það að þeir geta ekki neitt ! Mér finnst þetta ekki borga sig...Jújú þeir unnu svosem einhverja leiki en drulluðu svo á sig, og það gegn NORÐMÖNNUM ! eina liðið í öllum helv!"#$% riðlinum sem var ekki með eitt einasta ands#%" stig !!!! Einhverntíman hljóta menn að vilja búast við árangri af þessu liði. Maður heyrir fyrir hvert einasta mót að Íslenska landsliðið hafi mikla möguleika að komast áfram og gera þetta og vinna hitt en það gerist aldrei neitt ! síðan 1989 eða eitthvað, hefur skársti árangurinn verið svona sirka 6. sæti. Þannig að ég held að það megi verja þessum peningum í eitthvað annað. Núna voru þeir að enda við að skíta á sig upp á bak gegn Norðmönnum (best að nefna það aftur að þeir voru ekki með eitt einasta stig fyrir leikinn) og með því klúðruðu þeir möguleikanum á því að geta spilað í undanúrslitum, sem þeir áttu víst klárlega mikinn möguleika á samvkæmt öllum og þeim sjálfum líka. Gætu hugsanlega náð 5. sæti...sem er ekki shit fyrir mér.
Kannski ætti að gera það sama með fótboltalandsliðið, en þeir drífa bara í þessu strax ! tapa bara stórt fyrir liðum eins og færeyjum og andorra og bara klára sig úr þessu í staðin fyrir að gera eins og þessir dúddar í þessum handbolta. Vinna einhverja leiki og skíta svo á sig þannig að allt erfiðið hjá þeim gilti ekki neitt.

jæja ég nenni þessu tuði ekki lengur.
Ísland í undanúrslit EM 2070 !

» 15 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 20:35:36 / sonni

þrælpúngaður grænvír

G kvöld eins og Eli tár og góðvinur hans, Dóri Hippi, segja...nánari útskýringar á:
www.blog.central.is/iloveusa vægast sagt, ,,sérstök" síða
Smellti mér á Akureyris í dag með gamla settinu..það var tiltölulega leiðinlegt en þó þolanlegt. Þau gömlu, þó aðallega sá gamli, var að pæla í einhverjum litum á Santa Fe...spurning hvort gamli fari að endurnýja bráðlega ? það yrði ekki amalegt. Svo lá leiðin niður á Glerártorg. Ég og gamli fórum í Byko en sú gamla fór í einhverjar dauðabúðir..semsagt fatabúðir sem selja ekkert nema kvk föt. Allavegana kom ég útúr Byko með poka með vinnubuxum og verkfærum uppá rétt rúmar 11 þúsund krónur. Ég fór nefnilega með brand new kredikortið mitt á staðinn og rétti einhverri gífurlega svipljótri kellingu,..já eða svona konu, kortið mitt. Sá á henni hvað henni fannst gaman að strauja það og rétta mér einhvern Byko miða. Ótrúlegt að trúa því að hún neyðist til að fara heim á kvöldin !
Svo fórum við í Rúmfatalagerinn...þvílíkur búðardauði ! Hafið þið ekkert tekið eftir lyktinni þegar maður labbar inn ? Þetta er lykt af svona skrilljón ilmkertum sem ég trúi að sé sérstaklega gerð til að lama taugakerfið og láta mann sjá ofsjónir, sem hefur þær afleiðingar að maður haldi að allt handónýta pís of jönk-ið sem maður sér þarna, sé í rauninni allt tip-top græjur ! Við allavegana keyptum einhvern fataskáp inn í herbergið mitt. Hann er samt svona nokkurn vegin nothæfur hef ég trú á. Enda var hann á efri hæðinni svo að glæpalyktin af ilmkertunum spilaði ekki inn í þau kaup..
Svo var keypt í matin í Nettó...Nettó sem eru svo til með sér hús fyrir grænfóðrið...Kíkt í heimsókn til bróður Mömmu og svo haldið heim, tímanlega svo að ég gæti alveg örugglega ekki horft á Arsenal leikinn sem að sjálfsögðu tapaðist þó að þessir aumingjar hafi átt slatta af færum. Ég hata fótbolta.
Semsagt alveg splendit dagur ! húrra fyrir því og halló Hafnarfjörður...

Tími kominn á skoðanakönnunina, hér eru úrslitin úr henni. Voru nokkuð sumir að kjósa sjálfan sig ? ;)

Hver af þessum hözzlar mest á árinu ?
Mikki Dollu
12%
Ásgeir Þór
51%
Ég
25%
Heizzi
1%
Elz
11%

97 atkvæði bárust, sem er met !..sem ýtir enn undir samsæri..;)
En samkvæmt u.þ.b 50 manns mun Ásgeir Þór hamra á kellingunum alveg hægri-vinstri á árinu 2006, nú er eins gott að stráksi standi sig !
Heizzi fékk lítið af atkvæðum. Spurning hvort fólk hafi ekki örugglega áttað sig á því að þetta er Heiðar Hrafn, bróðir Mikka ? sem var einmit með 12% í könnunni, 1% ofar en Elz sem lesendur þessarar síðu hafa greinilega ekki trú að kauði muni leggja þær mjög margar á árinu, þrátt fyrir að strákurinn krulli bís og fari í ljós daginn út og daginn inn.
Svo var ég í öðru sæti, töluvert langt á eftir Ásgeiri. Held samt að þegar uppgjör þessarar könnunar verða gerð betri skil í lok ársins, þá muni ég vera þar sem Heizzi er og Elz þar sem Ásgeir er, Dömurnar munu falla fyrir gífurlegu tani Elz.

Já svo er pulsupartí hjá Mrs. Þorsteinssyni á eftir, stráksi tvítugur á miðnætti. Ætli maður kíkji ekki á snáðann.

orðið gott í bili, "farið gætilega í myrkrinu og njótið þess að vera til" (Siggi Stormur eftir veðurfréttir í hádeginu um dagin)

» 14 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 00:08:18 / sonni

ég held ég flúgi heim blabla fljúúgi heim !

Latur með þessa síðu, veit það.
Lítið annað sem maður pælir í núna nema bara að vinna. Byrjuðum daginn í Sólbakka á Höfðaveginum, vorum þar fram að kaffi en fórum svo í Lauga að rífa niður lampa og setja upp vinnuljós. Komum ekki heim fyrr en hálf 1 svo að ég mætti bara kl. 1 og ætlaði bara að hætta fyrr í staðin, en var svo til 6. Náði mér í einhverja tugi af svona litlum, pirrandi skurðum á hendurnar og rak hausinn í, eða rak eitthvað í hausinn á mér, álíka oft og skurðirnir eru samtals. En það er bara gaman að því.
Það eru svolítið stór viðbrigði að fara í skólann eina önn, gera ekki neitt í mánuð og fara svo að vinna á fullu. En ég hef bara gaman af þessu og maður er alltaf að læra eitthvað nýtt...þó það sé yfirleitt þannig að maður standi eins og hálfviti að reyna að klóra sig útúr því sem manni er sagt að gera. En einhverntíman verða allir að byrja og enginn er meðfæddur með svona hæfileika þannig að það þýðir ekkert annað en að sína þolinmæði þótt á móti blási !
jæja þá er predikun yfirstaðin, vindum okkur yfir í sálm 666, flytjandi: iron maiden.
Dísus hvað ég nenni þessu ekki, held að ég segi þetta gott í bili.
Minni á að Dolluson á tvítugs-afmæli á Sunnudaginn kemur !

Í kjölfar þessa leðinlega bloggs, getið þið farið á eftirfarandi til að hressa ykkur við:
www.blog.central.is/gifsveggir
www.blog.central.is/geinars
www.blog/central.is/bjarnifel

eða bara eitthvað annað..

» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4